Tempeh

Tempeh er sojaafurð gerð úr gerjuðum heilum sojabaunum. Tempeh er hefðbundinn matur í Indónesíu. Það er gert með því að gerja baunir með því að nota sérstakan svepp Rhizopus oligosporus.

Tempeh er sérstaklega vinsælt á eyjunni Java. Tempeh er líkt tófú á þann hátt að hvoru tveggja er gert úr gerjuðum sojabaunum en í tempeh eru notaðar heilar baunir með öðruvísi eiginleikum og það inniheldur hærra hlutfall af eggjahvítuefnum, trefjum og vítamínum en tófú. Tempeh er þétt í sér og hefur sérstakt bragð.

Talið er að tempeh hafi upprunalega komið fram á mið- eða austurhluta Java. Tengsl virðast milli tófúgerðar sem barst til Java með kínverskum innflytjendum í á 17. öld og tempehgerðar. Sagnfræðingar hafa sett fram þá tilgátu að tempeh hafi orðið til fyrir tilviljun sem aukaafurð við tófúgerð á þann hátt að sojabaunum sem var hent hafi gerjast af völdum sveppsins Rhizopus oligosporus og það hafi svo komið í ljós að þær voru vel ætar.

Tempeh er unnið úr heilum sojabaunum sem lagðar eru í bleyti og hálfsoðnar. Sérstakar tegundir ef tempeh eru gerðar úr öðrum tegundum bauna og úr hveiti og geta verið úr blöndu af baunum og heilhveiti.
- Ýmsir matarréttir úr tempeh
- Venjulegt tempeh goreng (ekki úr hrærðu deigi) í Indónesíu
- Steikt tempeh (úr hrærðu deigi) selt á matarmarkaði í Singapore
- Tempe bacem
- Tempe mendoan
- Kering tempe eða sambal goreng tempe
- Tempe orek eða orak-arik tempe
- Tempe penyet
- kripik tempe eins og nasl (snakk)
- Steikt menjes kacang
- Grillað tempe
- Tempeh samloka
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Tempeh“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 15. júlí 2019.
- History of Tempeh (soyinfocenter.com)