Fara í innihald

Extensible Stylesheet Language

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Extensible Stylesheet Language (skammstafað XSL) er flokkur mála sem notuð eru til að umbreyta og stjórna framsetningu XML-skjala. Upphafleg skilgreining XSL-vinnuhópsins hjá W3C skiptist í þrjá hluta:

  • XSL-umbreytingar (XSLT): breytir XML-skjalinu í eitthvað annað
  • XSL-forsniðshluti (XSL-FO): lýsir sjónrænni sniðmótun XML-skjals
  • XML-slóðir (XPath): tilvísanir innan XML-skjals en er ekki sjálft XML

Upphaflega hugmyndin með XSL var að búa til eitthvað hliðstætt við DSSSL fyrir XML-skjöl. XSL-vinnuhópurinn tók til starfa hjá W3C árið 1997 og skilaði af sér drögum árið 1998. XSLT og XPath urðu W3C-tilmæli árið 1999 og XSL-FO árið 2001.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.