Microsoft Tablet PC

Töflutölva er tölva í formi töflu með snertiskjá eða stíl til að stjórna henni. Talið er að sé einfaldara að bera töflutölvur og nota tölvur í ástöndum þar sem er erfitt og óhentugt að nota fartölvur. Til eru nokkrar tegundir af töflutölvum, sem eiga vel saman til ólíkra nota. Til dæmis eru sumar töflutölvur með færanlegu lyklaborði sem maður getur tekið burt ef hann vill. Aðrar eru aðeins með snertiskjá sem inntakstæki, og þarf að skrifa með stíl eða tengja lyklaborði til þess að slá texta inn.
Flestir töflutölvusnertiskjáir eru um 21–36 cm að stærð, svo að sé hægt að bera tölvuna í höndunum og skrifa á henni eins og á skrifblokki.
Microsoft átti fyrst við þessa tölvutegund sem „Tablet PC“ árið 2000. Flestar tölfutölvur nota Windows XP Tablet Edition stýrikerfi, afbrigði af Windows XP. Einnig fást töflutölvur sem nota Linux og iPhone OS (iPad).