Fara í innihald

HTML

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 10. desember 2009 kl. 07:44 eftir SieBot (spjall | framlög) (robot Bæti við: new:एच टी एम् एल्)
HTML (HyperText Markup Language)
Skráarending:.html, .htm
MIME-gerð:text/html
UTI:public.html
Hönnun:W3C
Tegund forsniðs:Ívafsmál
Útfærsla á:SGML
Útfært í:XHTML
Staðall:W3C 4,01 (Tilmæli)

HyperText Markup Language eða HTML er ívafsmál notað til þess að sníða stiklutexta, oftast notað við gerð vefsíðna og er það einföld útgáfa á SGML ívafsmálinu. HTML er nú staðall haldið við af World Wide Web Consortium (W3C) og er nýjasta útgáfa þess 4.01 en W3C mælir með að fólk noti hið XML byggða XHTML í stað þess. Sérstök merki, tög (oft kölluð mörk),eru notuð í HTML til að merkja á rökréttan hátt hvaða hlutar skjalsins þýða hvað, til dæmis hver fyrsta fyrirsögnin á síðunni er, merkin eru táknuð með goggum, eða minna en og stærra en merkjum. Einnig er stór hluti taga í HTML sem segir til um útlit hluta skjalsins, en HTML hefur einmitt verið gagnrýnt fyrir að greina ekki nægilega vel á milli útlitsþátta (umbrots) og innihalds.

Dæmi um HTML 4.01 kóða:

<!DOCTYPE HTML PUBLIC "-//W3C//DTD HTML 4.01//EN" "http://www.w3.org/TR/html4/strict.dtd">
<html lang="is">
  <head xmlns="http://www.w3.org/1999/xhtml" xml:lang="is">
    <title>Halló heimur!</title>
    <meta http-equiv="Content-Type" content="text/html; charset=UTF-8">
  </head>
  <body>
    <p>Halló heimur!</p>
  </body>
</html>
Myndræn sundurliðun á atriðum HTML-liðs.

Tenglar

  Þessi tölvunarfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.