Fara í innihald

Help!

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 29. júlí 2008 kl. 21:25 eftir WikiDreamer Bot (spjall | framlög) (robot Breyti: eo:Help! (albumo))

Help er nafnið á fimmtu plötu Bítlanna (e. The Beatles). Hún kom út þann 6. ágúst 1965 í Englandi en þann 13. ágúst í Bandaríkjunum. Eins og fyrri plötur Bítlanna var hún tekin upp í Abbey Road stúdíóinu í London undir stjórn George Martins og var umslagið hannað af Robert Freeman. Mörg laganna á plötunni voru líka í kvikmyndinni Help, sem hafði verið frumsýnd stuttu áður. Þessi plata byrjar á laginu Help eftir John Lennon.