Sports Reference
Útlit
Sports Reference, LLC er bandarískt íþrótta-tölfræðifyrirtæki sem rekur gagnagrunna um nokkrar íþróttir. Þeir innihalda Pro Football Reference fyrir amerískan fótbolta, Baseball Reference fyrir hafnabolta, Basketball Reference fyrir körfubolta, Hockey Reference fyrir íshokkí, FBref fyrir fótbolta, og síður fyrir háskólaútgáfurnar af amerískum fótbolta og körfubolta.[1][2] Sports Reference rekur einnig íþróttaleikinn Immaculate Grid á netinu og áskriftarsíðuna Stathead sem byggist á tölfræðigreiningu. Frá 2008 til 2020 hélt fyrirtækið einnig utan um tölfræði Ólympíuleikanna.
Tilvísanir
- ↑ Kramer, Staci D. (17 febrúar 2009). „Fantasy Sports Ventures Takes Minority Stake In Sports Reference LLC“. CBS News. PaidContent.org. Afrit af uppruna á 9. september 2017. Sótt 24. september 2021.
- ↑ Fisher, Eric (16 febrúar 2009). „FSV buys stake in reference sites“. Sports Business Journal. Afrit af upprunalegu geymt þann 17 febrúar 2009.