OpenAI
OpenAI | |
![]() | |
Rekstrarform | Einkarekið |
---|---|
Stofnað | 11. desember 2015 |
Staðsetning | San Francisco, Kaliforníu |
Lykilpersónur | Bret Taylor (stjórnarformaður)
Sam Altman (forstjóri) Greg Brockman (formaður) Mira Murati (tæknistjóri) |
Starfsemi | Gervigreind |
Vefsíða | openai.com |
OpenAI er bandarískt gervigreindarfyrirtæki stofnað í desember 2015 og með höfuðstöðvar í San Francisco, Kaliforníu. Markmið fyrirtækisins er að þróa „örugga og gagnlega“ alhliða gervigreind, sem það skilgreinir sem „sterklega sjálfstýrð kerfi sem skara fram úr mönnum í flestum fjárhagslega hagkvæmum vinnum“.[1] Sem leiðandi fyrirtæki í yfirstandandi gervigreindarbyltingunni,[2] fyrirtækið er þekkt fyrir GPT-kynslóð risamállíkananna, DALL-E-kynslóðina sem býr til myndir úr textalýsingu og myndbandsgerðartæknina Sora.[3][4] Útgáfa ChatGPT í nóvember 2022 er talinn hafa vakið víðtækan áhuga á sköpunargreind.
Árið 2023 og 2024 stóð OpenAI í margvíslegum málaferlum vegna meints brots á höfundarétti gegn fjölmiðlafyrirtækjum þar sem OpenAI hafði nýtt efni fyrirtækjanna til að þjálfa vörur þess.[5] Í nóvember 2023 bolaði stjórn OpenAI forstjóranum Sam Altman, vegna trúnaðarbrests milli Altman og stjórnar, og skipað síðan aftur í forstjórastól fimm dögum síðar eftir samkomulag sem varð til þess að hluta stjórnarinnar var skipt út.[6] Stjórn OpenAI hefur síðan ráðið Lawrence Summers, fyrrverandi fjármálaráðherra Bandaríkjanna, og Paul Nakasone, fyrrverandi yfirmanni þjóðaröryggisstofnunarinnar.
Tilvísanir
- ↑ „OpenAI Charter“. openai.com (bandarísk enska). 9 apríl 2018. Afrit af upprunalegu geymt þann 14 júlí 2023. Sótt 11 júlí 2023.
- ↑ „Artificial: The OpenAI Story“. WSJ (bandarísk enska). 10. desember 2023. Afrit af upprunalegu geymt þann 12. desember 2023. Sótt 12. desember 2023.
- ↑ „Models - OpenAI API“. OpenAI. Afrit af upprunalegu geymt þann 19 nóvember 2023. Sótt 19 nóvember 2023.
- ↑ Jindal, Siddharth (16 febrúar 2024). „OpenAI Steals the Spotlight with Sora“. Analytics India Magazine (bandarísk enska). Afrit af upprunalegu geymt þann 20 apríl 2024. Sótt 10 júlí 2024.
- ↑ Indriðason, Hallgrímur (27. desember 2023). „New York Times stefnir OpenAI fyrir brot á höfundarétti - RÚV.is“. RÚV. Sótt 23 ágúst 2024.
- ↑ Gísladóttir, Hólmfríður (22 nóvember 2023). „Altman snýr aftur til OpenAI - Vísir“. visir.is. Sótt 23 ágúst 2024.