Help! er nafnið á fimmtu plötu Bítlanna. Hún kom út þann 6. ágúst 1965 í Englandi en þann 13. ágúst í Bandaríkjunum. Eins og fyrri plötur Bítlanna var hún tekin upp í Abbey Road stúdíóinu í London undir stjórn George Martins og var umslagið hannað af Robert Freeman. Fyrstu sjö lögin á plötunni, öll lögin á fyrri hlið upprunalegu vínylplötunnar voru líka í kvikmyndinni Help!, sem hafði verið frumsýnd stuttu áður. Platan byrjar á laginu „Help!“ eftir John Lennon. Meirihluti laganna á plötunni er eftir Lennon–McCartney.
Lagalisti
Öll lög voru samin af Lennon–McCartney, nema þar sem er tekið fram.
↑Spignesi, Stephen J.; Lewis, Michael (2004). Here, There, and Everywhere: The 100 Best Beatles Songs. New York, NY NY: Black Dog. ISBN978-1-57912-369-7. „the unabashed more-or-less traditional pop rock of A Hard Day's Night and Help!...“