JavaScript
- Athugið að Java er annað og óskylt forritunarmál.
JavaScript (eða Jövuskrift) er forritunarmál sem er oft notað á vefsíðum. Það er túlkað (ekki þarf að þýða það fyrirfram) og æðra (líkist meira hugsunum mannsins en þeim ferlum sem tölvan keyrir að lokum). Það má bæði nota til að keyra litlar skriftur og stór hugbúnaðarverkefni. Jövuskrift náði mikilli útbreiðslu þar sem það var eina forritunarmálið sem var hægt að nota til að búa til gagnvirkar vefsíður án þess að notandi þyrfti að hlaða niður aukalegum hugbúnaði fyrir vafrann sinn. Þess vegna er Jövuskriftar-kóði notaður á flestum stærri vefsíðum í dag, þar getur það hvort tveggja gert litla útreikninga og keyrt heilu tölvuleikina. Jövuskrift er í dag notuð til að skrifa vefsíður, netþjóna, skriftur, forrit, og smáforrit.
JavaScript er stutt af vöfrum en ekki eina forritunarmálið sem hægt er að nota fyrir þá. Bæði er hægt að nota WebAssembly sem flestir vafrar (aðrir en Internet Explorer 11) styðja, beint en aðallega með því að nota önnur forritunarmál, s.s. C eða C++, sem þýðast yfir í það; en auk (eða bæði og) er hægt að nota önnur mál, s.s. TypeScript sem þýðast yfir í JavaScript. Java var áður fyrr stutt vel í vöfrum, en ekki lengur, og þó svo að það eru líkindi milli Java og JavaScript eru það ólík og aðskilin mál sem hafa mjög mismunandi hönnun (þó bæði hlutbundin, er Java t.d. ekki byggt á prótótýpum).