Fara í innihald

Linux

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 12. nóvember 2015 kl. 14:38 eftir Akigka (spjall | framlög)
Mörgæsin Tux er lukkudýr Linux.

Linux (eða GNU/Linux) er UNIX-legt og POSIX-samhæft frjálst stýrikerfi sem samanstendur af Linuxkjarnanum og ýmsum kerfishugbúnaði, þar á meðal GNU-tólum. Stýrikerfið dregur nafn sitt af finnska forritaranum Linus Torvalds sem gaf út fyrstu útgáfa Linuxkjarnans 5. október 1991. Frjálsu hugbúnaðarsamtökin sem þróuðu GNU-tólin hafa barist fyrir því að stýrikerfið sé kallað „GNU/Linux“ til að leggja áherslu á framlag GNU-verkefnisins til stýrikerfisins, en það er umdeilt.

Upphaflega var Linux þróað sem stýrikerfi fyrir tölvur með Intel x86-samhæfða örgjörva en það hefur síðan þá verið þýtt fyrir fleiri vélbúnaðarútfærslur en nokkuð annað stýrikerfi. Vegna Android-stýrikerfisins sem notast við Linux í grunninn og er mikið notað í snjallsíma og spjaldtölvur er það nú langalgengasta alhliða stýrikerfi heims. Linux er líka leiðandi stýrikerfi á netþjónum og ofurtölvum en er einungis með 1,5% hlut á borðtölvum. Chrome OS sem líka er byggt á Linux er algengt á ódýrum fartölvum. Linux er líka algengt sem fastbúnaður í ívafskerfum eins og sjónvarpstölvum, beinum, leikjatölvum og snjallúrum þar sem stýrikerfið er sérsniðið að vélbúnaðinum.

Til eru margar útgáfur af því sem kölluð eru „distro“ (komið af enska orðinu „distribution“, sem þýðir í þessu samhengi útgáfa).

Nokkrar útgáfur GNU/Linux

  Þessi hugbúnaðargrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.