Fara í innihald

WebKit

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 23. september 2013 kl. 13:31 eftir Akigka (spjall | framlög)
Merki WebKit

WebKit er myndsetningarvél fyrir myndsetningu vefsíðna. Safari-vafrinn frá Apple notar hana og Google Chrome-vafrinn notaði vélina fram að útgáfu 27. WebKit er skrifað í C++ en hjúpað með Objective-C-forritunarviðmóti í stýrikerfum Apple.

Upphaf WebKit má rekja til þess að Apple-forritarar kvísluðu myndsetningarvél KDE-verkefnisins, KHTML, árið 2001 og þróuðu áfram fyrir Mac OS X. Árið 2005 gaf Apple alla hluta WebKit út með opnu notendaleyfi.

Árið 2013 tilkynntu Google og Opera Software að þeir hefðu kvíslað WebKit í nýja myndsetningarvél, Blink.

Helstu hlutar WebKit eru WebCore sem útfærir myndsetningarvélina og DOMið, JavaScriptCore sem útfærir stuðning við JavaScript og Drosera sem er JavaScript-villuleitarforrit.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.