PHP
PHP | |
![]() | |
Höfundur | Rasmus Lerdorf |
---|---|
Hönnuður | PHP Group |
Fyrst gefið út | 1995 |
Notkun | vefforritunarmál |
Leyfi | PHP-leyfi |
Vefsíða | http://www.php.net |
PHP (endurkvæm skammstöfun fyrir: PHP: Hypertext Preprocessor) er túlkað forritunarmál sem er ætlað fyrir forritun kvikra vefsíðna. PHP er oftast túlkað á vefþjóni en það er líka hægt að keyra það í skipanaviðmóti og jafnvel til að búa til sjálfstæð gluggaforrit.
Þróun
PHP var upphaflega búið til af danska forritaranum Rasmus Lerdorf árið 1994. Helsta útfærsla þess er nú þróuð af PHP Group en hluti af umsýslu kóðans er í höndum ísraelska fyrirtækisins Zend Technologies sem Zeev Suraskit og Andi Gutmans stofnuðu árið 1999 utanum endurritun PHP-túlksins. Sú útgáfa er í reynd staðalútgáfa PHP þar sem ekki er til neinn formlegur staðall fyrir forritunarmálið.
Notkunarleyfi
PHP er gefið út með s-k PHP-leyfi sem er samþykkt af Free Software Foundation sem frjálst hugbúnaðarleyfi.
Ritháttur
Ritháttur PHP er að mestu kominn úr forritunarmálunum C, Perl og Java.
Dæmi um kóða:
<?php
// Þetta er athugasemd, kóðinn að neðan sýnir „Halló heimur!“
echo 'Halló heimur!';
phpinfo(); # Þetta sýnir ýmsar upplýsingar um stillingar á vefþjóninum og PHP þýðandanum
?>
Þó að ritháttur PHP sé fengin úr ofangreindum forritunarmálum, eiga málin fátt sameiginlegt. PHP kóði er skrifaður í bland með HTML í skilgreiningunum á heimasíðum. Þegar vefsíðan er skoðuð með vafra er PHP kóðanum breytt í HTML sem vafrarinn getur skoðað.
php er skemmtileg forritunartegund lol