Fara í innihald

Atacama Large Millimeter Array

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 13. ágúst 2011 kl. 09:11 eftir Oddurv (spjall | framlög) (Tók aftur breytingar 95.68.100.57 (spjall), breytt til síðustu útgáfu Navaro)
Sýn listamanns á Atacama Large Millimeter/submillimeter Array (ALMA) á Chajnantorsléttunni í Chile.

Atacama Large Millimeter/submillimeter Array eða ALMA er alþjóðlegt samstarfsverkefni Evrópu (ESO), Norður Ameríku, austur Asíu og Chile um smíði stærsta stjörnusjónauka heims. ALMA er víxlmælir, röð 66 12 metra og 7 metra útvarpssjónauka sem mæla millímetra og hálfsmillímetra bylgjulengdir (0,3 til 9,6 mm). Stjörnustöðin er í smíðum í 5000 metra hæð yfir sjávarmáli á Chajnantor sléttunni í Atacamaeyðimörkinni í norður Chile. Hún er því hæsta stjörnustöð heims. ALMA er ætlað að rannsaka myndun stjarna snemma í sögu alheimsins og ljósmynda myndunarsvæði stjarna og reikistjarna í Vetrarbrautinni okkar. Kostnaður við verkefnið nemur meira en 1 milljarði bandaríkjadala. Gert er ráð fyrir að mælingar hefjist með ALMA síðla árs 2011 og að hann verði tekinn í fulla notkun árið 2013.[1]

Heimildir

  1. Sævar Helgi Bragason (2011). Atacama Large Millimeter/submillimeter Array (ALMA). Stjörnufræðivefurinn http://www.stjornuskodun.is/alma sótt (4.6.2011)

Tenglar

  Þessi stjörnufræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Snið:Tengill ÚG Snið:Tengill ÚG Snið:Tengill ÚG Snið:Tengill ÚG Snið:Tengill ÚG Snið:Tengill ÚG