Atacama Large Millimeter Array

Atacama Large Millimeter/submillimeter Array eða ALMA er alþjóðlegt samstarfsverkefni Evrópu, Norður Ameríku, austur Asíu og Chile um smíði stærsta stjörnusjónauka heims. ALMA er víxlmælir, röð 66 12 metra og 7 metra útvarpssjónauka sem mæla millímetra og hálfsmillímetra bylgjulengdir (0,3 til 9,6 mm). Stjörnustöðin er í smíðum í 5000 metra hæð yfir sjávarmáli á Chajnantor sléttunni í Atacamaeyðimörkinni í norður Chile. Hún er því hæsta stjörnustöð heims. ALMA er ætlað að rannsaka myndun stjarna snemma í sögu alheimsins og ljósmynda myndunarsvæði stjarna og reikistjarna í Vetrarbrautinni okkar. Kostnaður við verkefnið nemur meira en 1 milljarði bandaríkjadala. Gert er ráð fyrir að mælingar hefjist með ALMA síðla árs 2011 og að hann verði tekinn í fulla notkun í árslok 2012.[1]
Heimildir
- ↑ Sævar Helgi Bragason (2011). Atacama Large Millimeter/submillimeter Array (ALMA). Stjörnufræðivefurinn http://www.stjornuskodun.is/alma sótt (4.6.2011)
Tenglar
- Stjörnufræðivefurinn: Atacama Large Millimeter/submillimeter Array
- ALMA - Leitin að uppruna okkar í alheiminum
Snið:Tengill ÚG Snið:Tengill ÚG Snið:Tengill ÚG Snið:Tengill ÚG Snið:Tengill ÚG Snið:Tengill ÚG